
Anna Dóra
Frostadóttir

Herdís
Finnbogadóttir
Anna Dóra lærði klíníska sálfræði við Macquarie háskólann í Sydney, Ástralíu. Einnig lauk hún félagsráðgjafanámi frá Háskóla Íslands. Hún hefur starfað sem sálfræðingur frá árinu 2006, fyrst sem sálfræðingur á geðsviði Landspítala háskólasjúkrahúss til ársins 2007. Hún vann síðan sem HAM þerapisti á heilsugæslustöðvum í St. Albans í Bretlandi (IAPT) á árunum 2008-2011. Frá því í mars 2011 hefur hún unnið sem sálfræðingur í Vettvangsgeðteymi Reykjavíkur á vegum Velferðarsviðs. Anna Dóra hefur jafnframt lokið mastersnámi í núvitund við Bangor háskólann í Bretlandi. Hún rekur eigin sálfræðistofu á Núvitundarsetrinu þar sem helstu verkefni hennar er klínísk meðferð streitu, þunglyndis, kvíða og alvarlegra geðraskanna. Samhliða því hefur hún sinnt kennslu í núvitund á háskólastigi og haldið fjölda námskeiða í núvitund fyrir klíníska hópa, fagaðila, almenning og starfsmenn fyrirtækja.
Herdís lærði sálfræði við Háskóla Íslands og útskrifaðist þaðan árið 2005. Hún vann sem skólasálfræðingur í Reykjanesbæ frá útskrift til ársins 2008. Frá þeim tíma hefur hún starfað sem sálfræðingur á geðsviði Landspítala háskólasjúkrahúss þar sem hún stýrir meðferðarúrræði þar sem áhersla er lögð á núvitundarþjálfun. Síðastliðin ár hefur hún lagt áherslu á meðferð byggða á samkennd (Compassion Focused Therapy) undir handleiðslu Paul Gilberts prófessors við háskólann í Derby. Herdís starfaði áður sem líffræðingur í Blóðbankanum til 15 ára, er lærður jógakennari og kenndi bæði leikfimi og jóga til nokkurra ára. Hefur auk þess stundað kennslu á háskólastigi og rekur eigin sálfræðistofu, Sálfræðistofan sf. á Klapparstíg 25-27, samhliða starfi sínu á geðsviði Landspítalans.

Guðbjörg
Daníelsdóttir

Margrét
Bárðardóttir
Guðbjörg lærði sálfræði við Háskóla Íslands og Boston College í Bandaríkjunum. Einnig lauk hún kennsluréttindanámi frá Háskóla Íslands. Hún hefur starfað sem sálfræðingur frá árinu 2003, fyrst hjá Geðhjálp en síðan á geðsviði Landspítala háskólasjúkrahúss um nokkurra ára skeið. Þar sinnti hún bæði einstaklingsmeðferð á göngudeild og á dagdeild Hvítabands auk þess að stýra námskeiðum og hópmeðferð þar sem unnið var bæði með hugræna atferlismeðferð og núvitund. Guðbjörg hefur víðtæka reynslu af meðferð geðrænna vandamála s.s. þunglyndis, kvíða og tilfinningalegra erfiðleika þar sem núvitund hefur orðið sívaxandi þáttur í meðferðarvinnunni. Samhliða klínísku starfi hefur Guðbjörg sinnt kennslu í sálfræði í fjölmörg ár, bæði á framhaldsskóla- og háskólastigi. Guðbjörg rekur nú eigin sálfræðistofu á Klapparstíg 25-27 Reykjavík auk þess að halda námskeið í núvitund fyrir almenning.
Margrét nam sálfræði við Freie Universität, Berlín, Þýskalandi og útskrifaðist 1981.
Hún bjó í Berlín við nám og störf í 15 ár en hefur starfað á ýmsum deildum geðsviðs LSH frá 1987, m.a. móttökudeildum og á krabbameinsdeildum spítalans.
Margrét stundaði nám í hugrænni atferlismeðferð í Oxford 2002–2003 og hóf jafnframt þjálfun í núvitund sem er nú hluti af hennar daglega starfi í meira en áratug. Margrét hefur sótt kennaranámskeið í núvitund bæði við Oxford Cognitive Therapy Centre í samvinnu við háskólann í Oxford og við háskólann í Bangor, Wales. Síðustu árin hefur hún lagt aukna áherslu á ,,Meðferð byggð á samkennd“ (Compassion Focused Therapy) undir handleiðslu Paul Gilberts prófessors við háskólann í Derby. Margrét hefur haldið fjölmörg námskeið í núvitund fyrir almenning, ýmsa sjúklingahópa og á stofnunum. Margrét hefur langa reynslu af störfum með margbreytileg tilfinningaleg og geðræn vandamál og verið í stöðugri endurmenntun á því sviði. Hún starfar nú á Dagdeild Hvítabandsins á LSH ásamt því að reka eigin stofu, Sálfræðistofan sf á Klapparstíg 25-27. Auk þess hefur hún stundað kennslu á háskólastigi og sinnt handleiðslu starfsfólks og stjórnenda í fyrirtækjum og stofnunum.