top of page

Núvitund er sú vitund sem skapast við að beina athyglinni með ásetningi,

á þessu augnabliki, að því sem er, eins og það er, án þess að dæma.

„Þú getur ekki

stöðvað öldurnar

en þú getur lært að

sigla með þeim“

Jon Kabat-Zinn

Í núvitundarþjálfun er tvinnað saman aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar og sálfræði austrænnar visku. Niðurstöður rannsókna hafa sýnt fram á að núvitundarþjálfun hefur jákvæð áhrif á vellíðan, bætir heilsufar, dregur úr streitu, kvíða og depurð. Hún felur í sér að læra að nema staðar „hér og nú“, láta af sjálfstýringu hugans og sættast betur við það sem er. 

Velkomin í núið er 8 vikna núvitundarnámskeið sem byggist á Mindfulness-Based Cognitive Therapy (MBCT) sem er ítarlega rannsökuð og gagnreynd meðferð fyrir endurteknu þunglyndi. Velkomin í núið er styttri útgáfa af MBCT og er hugsað fyrir almenning til að takast á við streitu daglegs lífs.

 

Með fræðslu, hugleiðsluæfingum og annarri hugarþjálfun er markmið námskeiðsins að öðlast meiri hugarró og njóta betur líðandi stundar.

Námskeiðið er skipulagt í samræmi við metsölu-bókina „Finding Peace in a Frantic World“ eftir Mark Williams og Danny Penman þar sem sérstök áhersla er lögð á að ná tökum á streitu daglegs lífs. Hver tími er 1 ½ klst. að lengd og mælt er með 30-40 mínútna heimavinnu á hverjum degi á meðan á námskeiðinu stendur.

Fyrir áhugasama þá eru ítarlegar upplýsingar um núvitund á vefsíðunni www.nuvitundarsetrid.is

Fullbókað

       Næstu námskeið

1. feb. - fimmtudagar milli kl. 11:00-12:30

Leiðbeinandi: Anna Dóra Frostadóttir

8. mars - fimmtudagar milli kl. 17:30-19:00

Leiðbeinandi: Herdís Finnbogadóttir

© 2014 nuvitund.com. Síða gerð með Wix.

bottom of page